Í september 2008 stofnuðu hjónin Hinrik Þorsteinsson og Guðný Ragnhildur Jónasdóttir ABC Children‘s Aid í Búrkína Fasó og var skólinn Ecole ABC de Bobo settur á fót í borginni Bobo-Dioulasso sem er næststærsta borg Búrkína Fasó með rúmlega 1.100.000 íbúa.
Stjórnuðu þau hjónin skóla- og uppbyggingarstarfinu ásamt aðstoðarframkvæmdastjóranum Kadi Bambara. Árið 2023 tóku svo við hjónin Haraldur Pálsson og Jóhanna Sólrún Norðfjörð en þau hafa unnið mikið uppbyggingastarf á svæðinu á undanförnum árum. Sjá þau nú um að stjórna skóla-og uppbyggingarstarfinu ásamt Kadi. Við skólann starfa auk þeirra á þriðja tug innfæddra starfsmanna.
Húsnæðið sem notast var við fyrir skólastarfið fyrstu þrjú árin var fengið að láni og endurbætt til starfsins. Í mars 2011 flutti skólinn inn í nýtt húsnæði en bygging þess var fjármögnuð fyrir gjafafé frá fyrirtækinu Atorka Group. Skólahúsið samanstóð af 6 kennslustofum og hýsti tæplega 400 börn í 1. til 6. bekk en árið 2017 voru nemendur skólans rúmlega 500 talsins. Skólinn er staðsettur rétt við fátækrahverfið Quenzenville í útjaðri borgarinnar og koma börnin frá bláfátækum heimilum. Í skólanum fá börnin skólagögn, skólabúning og heita máltíð kl. 12:00. Auk þess er heilsugæsla á staðnum.
Í júní 2014 útskrifaðist fyrsti hópurinn úr grunnskóla, alls 33 börn úr 6. bekk. Unglingaskóli (Secondary school) hefur verið settur á fót og haustið 2014 hófu 33 nemendur nám á fyrsta ári unglingadeilar (7. bekkur í íslensku skólakerfi).
Bygging á þriggja hæða framhaldsskóla er langt á veg komin og miklar framkvæmdir hafa verið á svæðinu þar sem búið er að koma fyrir enn stærri vatnstanki og fleiri sólarsellum bætt við. Aðstaða starfsfólks hefur verið bætt, stærri matsalur verið tekinn í notkun og eldhúsaðstaða bætt til muna.
Í janúar árið 2016 hófst tölvukennsla í skólanum. Fyrirtækið Tengill ehf. gaf ABC barnahjálp 91 tölvu ásamt skjám, músum og lyklaborðum sem send voru skólanum. Tölvukennslan lyftir náminu á hærra stig og eykur starfsmöguleika nemenda til muna að námi loknu.
Starfrækt er starfsmenntadeild fyrir börn sem gengur verr að fóta sig í hefðbundnu bóknámi. Þar er m.a. boðið upp á saumakennslu, nám í bifvélavirkjun og húsgagnasmíði. Einnig er boðið upp á tónlistarkennslu á sama stað.
Skólaárið er frá byrjun október til júníloka. Skólinn í Bobo er rekinn fyrir styrktarfé frá ABC barnahjálp. Styrktarféð kemur frá stuðningsaðilum barnanna í skólanum og greiðir hver um 3.800 kr. á mánuði með sínu barni.
Nemendur skólans eru fátæk börn á skólaaldri sem búa í fátækrahverfinu Quenzenville í útjaðri borgarinnar. Aðeins örfá börn úr hverfinu ganga í skóla og því er reynt að dreifa hjálpinni meðal fólksins eins og frekast er unnt með því að gefa einu barni úr hverri fjölskyldu tækifæri til að ganga í skólann. Árið 2017 var meðalfjöldi fæðinga á hverja konu 5,71 börn og því mörg börn í hverri fjölskyldu sem ekki komast í skóla. Fulltrúar foreldrafélagsins benda á fátækustu fjölskyldurnar í hverfinu sem hafa mesta þörf fyrir hjálp. Hjálpin er ekki aðeins fólgin í menntun barnanna heldur léttir það undir með fjölskyldunum að börnin sem fá að ganga í skóla fá einnig ókeypis mat og læknishjálp í skólanum. Eins og fram hefur komið er Búrkína Fasó eitt af fátækustu ríkjum heims og er menntun barna ekki á forgangslista fátækra foreldra sem þurfa fyrst og fremst að hugsa um grunnþarfir fjölskyldunnar svo sem mat og húsnæði.
Í skólanum er starfrækt öflugt foreldrafélag og eru foreldrarnir mjög duglegir að aðstoða við ýmis verk. Til að mynda sjá þeir alfarið um ræktun á matjurtum fyrir skólastarfið á lóð sem skólinn hefur til afnota í um 10 kílómetra fjarlægð frá skólanum. Mikil áhersla er lögð á það við foreldrana að skólinn sé þeirra verkefni. Það þykir einstakt að fátækt fólk á þessu svæði gefi vinnu sína eins foreldrar skólabarnanna gera enda þykir mikið lán að barn úr þeirra fjölskyldu komist í skóla.
Landið
Búrkína Fasó er landlukt ríki í Vestur-Afríku með landamæri að Malí í norðri, Níger í austri, Benín í suðaustri, Tógó og Gana í suðri og Fílabeinsströndinni í vestri. Landið hét Efri-Volta til ársins 1984 þegar því var breytt í Búrkína Fasó, sem merkir „land hinna uppréttu“ á tungumálunum moré og dioula sem eru tvö stærstu mál innfæddra. Landið er rúmlega tvisvar sinnum stærra en Ísland og eru íbúar um 23,6 milljónir.
Höfuðborgin heitir Ouagadougu og opinbert tungumál er franska. Landið fékk sjálfstæði frá nýlenduherrum sínum Frökkum árið 1960. Búrkína Fasó er eitt af fátækustu ríkjum heims samkvæmt þróunarskýrslu Sameinuðu þjóðanna. Verg landsframleiðsla á mann er með því lægsta sem gerist, 30% landsframleiðslunnar er í landbúnaði þar sem 90% íbúanna vinna. Landbúnaður er aðallega kvikfjárrækt, en í suður- og suðvesturhlutanum er stunduð jarðrækt, einkum á dúrru, perluhirsi, maís, jarðhnetum, hrísgrjónum og bómull.
Ólæsi í landinu er með því hæsta sem gerist í heiminum. Um 41,2% landsmanna eldri en 15 ára voru læs árið 2018, þar af 50,1% karla en aðeins 32,7% kvenna. Samkvæmt landslögum í Búrkína Fasó er skólaskylda barna frá 6 til 16 ára. Skólavist á að vera ókeypis en stjórnvöld hafa ekki fjármagn til að sinna þörfinni fyrir öll börn í landinu. Ríkisreknir skólar eru allt of fáir og fá of lítið fjármagn til rekstursins og þurfa að rukka foreldra um aukagjöld. Auk þess þurfa fjölskyldur barnanna, sem eru svo heppin að fá skólavist, að borga fyrir skólagögn, skólabúning o.fl. og er sá kostnaður mun hærri en flestar fjölskyldur hafa ráð á. Skólar á vegum hins opinbera eru yfirfullir, oft með 100-200 börn í bekk. Þegar skólar eru fullsetnir er börnunum vísað frá og þurfa þau að reyna aftur næsta ár. Drengir hafa forgang um skólavist og er ólæsi meðal stúlkna því mun hærra en meðal drengja. Þrátt fyrir að síðustu árin hafi aðgengi að menntun aukist umtalsvert eru aðeins 65,5% barna sem ljúka grunnskólamenntun og útskrifast úr 6. bekk. Þegar kemur að unglingadeild, 7.-10. bekk (secondary education), er hlutfallið enn lægra. Ekki nema 37% nemenda ljúka 8. bekk og 14% ljúka námi í 10. bekk. Erfitt er að fá foreldra til að senda börn sín í unglingaskóla þar sem kostnaðurinn er of hár. Þá eru það aðallega drengir sem fá að fara því stúlkurnar þurfa að hjálpa til með heimilisstörf, passa yngri börn eða eru jafnvel giftar.
Talið er að í Búrkína Fasó séu töluð 70 mismunandi tungumál. Á nýlendutímanum var franska tekin upp sem opinbert tungumál í landinu en hún er eingöngu töluð af þeim sem hafa gengið menntaveginn. Franska er tungumál stjórnsýslu, pólitískra stofnana og opinberrar þjónustu. Það er eina tungumálið fyrir lögum, stjórnsýslu og dómstólum og kennsla í skólum fer fram á frönsku.
6.000 kr.
6.000 kr.
1.200 kr.
10.000 kr.
3.000 kr.
1.500 kr.
Þú getur styrkt barn með mánaðarlegum greiðslum.
Höfundaréttur 2024 – ABC barnarhjálp
Höfundaréttur 2024 – ABC barnarhjálp