fbpx

BERNSKA – Prentverk eftir Esther Ýr Óskarsdóttur

ABC barnahjálp í samtarfi við Esther Ýr Óskarsdóttur hefur hafið sölu á prentverki sem Esther Ýr málaði ásamt syni sínum og gaf samtökunum.  Verkið geymir sögu um samvinnu, æsku og von.

Með því að kaupa þetta prentverk ert þú einnig hluti af stærra verkefni. Allur ágóði af sölu þess rennur beint til ABC barnahjálpar. Hagnaðurinn fer í að útvega börnunum menntun, heilbrigðisþjónustu og máltíðir til að efla sjálfbærni þeirra. Gjöfin þín er ekki aðeins listaverk – hún er tákn um þau jákvæðu áhrif sem þú hefur á líf annarra. Takk fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi.

Verkið er fáanlegt í þremur stærðum, A5, A4 og A2 og mun stærð A2 einungis verða fáanlegt í takmörkuðu merktu upplagi, en aðeins 30 eintök verða seld af því.

*Athugið að rammi fylgir ekki með.
*Sendingargjöld geta bæst við verð í greiðsluferli.

6.500 kr.20.000 kr.