Jólahappdrætti – vannst þú?
Í dag, 30. desember mætti Hjalti Skaale Glúmsson framkvæmdastjóri ABC barnahjálpar ásamt Óskari Steinari Jónssyni verslunarstjóra Nytjamarkaðanna til sýslumanns og drógu í jólahappdrættinu okkar. Við erum afskaplega þakklát og glöð fyrir þann stuðning sem þið sýnið okkur með því að taka þátt og var metþáttaka í ár. Hér má sjá vinningaskrá listaða í miðaröð. Innilega […]
Gleðileg jól
Við hjá ABC barnahjálp viljum óska ykkur gleðilegrar jólahátíðar og friðar á nýju ári. Með dyggum og ómetanlegum stuðningi frá stuðningsaðilum okkar hefur ABC verið gert kleift að starfa ár eftir ár og staðið trúföst að baki þúsundum barna og gefið þeim tækifæri til að mennta sig. Við þökkum samfylgdina og stuðninginn á liðnu ári […]
BERNSKA – ABC barnahjálp X Esther Ýr
Það gleður okkur að kynna skemmtilegt verkefni sem við höfum verið að vinna að síðastliðnar vikur. Í samstarfi við Esther Ýr Óskarsdóttur, ungan og upprennandi listamann, höfum við sett á sölu þetta fallega eftirprent af listaverkinu Bernska. Eftirprentið verður til sölu yfir jólatímann og allur ágóði af sölu þess rennur beint til ABC barnahjálpar. Hagnaðurinn […]
Alþjóðlegur dagur malaríu – 25. apríl 2024.
Sjúkdómurinn malaría er oft sagður vera sjúkdómur þeirra fátæku. En ár hvert deyja yfir 600.000 manns vegna hans. 249 milljónir tilfelli greindust árið 2022 og voru yfir 95% þeirra í Afríku. Baráttan gegn malaríu er eitt þeirra atriða sem lögð er áhersla á í Heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun. Markmiðið er að fækka dauðsföllum um að minnsta […]
Jólakortin á leið til stuðningsaðila
Nú eru jólakort frá börnunum farin í póst til stuðningsaðila. Í ár eins og áður fer mikill undirbúningur í að senda og voru starfsmenn og sjálfboðaliðar í jólaskapi við þann undirbúning. En í ár var pökkunin með öðruvísi sniði en áður þar sem starfsfólk Össurar kom til okkar að hjálpa. Össur heldur úti starfsemi sem […]
Von í samfélagi sem er markað af áföllum
„Unnið hefur verið þrekvirki í litla þorpinu Rackoko í norðurhlouta Úganda þar sem ABC barnahjálp rekur skóla með heilsugæslu, kvennadeild, skurðastofu og ný malaríudeild opnar í nóvember. Næst stendur til að bjóða upp á tveggja ára nám í heilbrigðisgreinum.“ „Við erum búin að vera með skóla í Norður-Úganda í 30 ár, þar sem Íslendingar hafa […]
Börn hjálpa börnum
Nú fer að líða að árlega söfnunarverkefninu okkar Börn hjálpa börnum og er þá gaman að líta til baka og rifja upp í hvað peningarnir fóru sem söfnuðust á síðasta ári – en þá var söfnin haldin í 20. skipti. Þeir fjármunir sem safnast saman ár hvert skipta gríðarlega miklu máli fyrir þá sem þiggja […]
„Ég á mér draum“
Þegar börn alast upp í sárri fátækt og þekkja ekkert annað er ekki skrítið að velta því fyrir sér hvort þau á annað borð láti sig dreyma. Starfsfólk okkar í Úganda spurði nemendur nokkurra spurninga á þessa leið. Það sem vekur athygli er hve mikill vilji er fyrir hendi hjá börnunum að láta gott af […]
Draumar ABC nemenda
Inga Eiríksdóttir starfaði sem sjálfboðaliði á vegum ABC barnahjálpar í Úganda sumarið 2015. Í fyrsta tölublaði tímarits ABC skrifaði hún „ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að geta eytt síðastliðnu sumri sem sjálfboðaliði hjá ABC í Úganda. Það var hreint út sagt frábær lífsreynsla.“ Hún fékk marga nemendur í ABC skólunum til að skrifa niður á […]