Andlit Afríku
Bókin Andlit Afríku Hringfarinn – einn á hjóli í Afríku er gjöf frá Hringfaranum, styrktarsjóði til ABC barnahjálpar og verður bókin til sölu á skrifstofu okkar á 7.900 kr. Allt söluandvirði bókarinnar rennur óskert til ABC barnahjálpar.Hringfarinn Kristján Gíslason fór á mótorhjóli sínu niður Afríku árið 2019 og hjólaði 17.411 kílómetra. Á leiðinni upplifði hann […]
Aðalfundur ABC barnahjálpar
ABC barnahjálp boðar til aðalfundar þriðjudaginn 24. maí kl. 17:30 í húsnæði ABC barnahjálpar og Nytjamarkaðarins við Nýbýlaveg 6. Á dagskránni eru almenn aðalfundarstörf. Allir eru velkomnir.
Áramótakveðja
Við óskum ykkur gleðilegs nýs árs um leið og við þökkum fyrir það liðna. Við erum uppfull af þakklæti er við horfum til baka yfir þau 33 ár sem ABC barnahjálp hefur starfað og hversu stórkostlega hluti hægt er að gera fyrir börnin okkar í Afríku og Asíu fyrir ykkar stuðning. Það er hreinlega ómetanlegt […]
Bakstursdagur hjá nemendum í Búrkína Fasó
Hverskyns bakstur þykir sjálfsagður hlutur fyrir okkur Íslendinga og ef svo ber undir er lítið mál að skreppa í bakarí og þar má nálgast flest það sem hugurinn girnist. Í Búrkína Fasó er ekki á hvers færi að fá nýbakað brauð eða kökur því venjulegt fólk hefur hvorki aðstöðu til baksturs né efni á því […]
Alþjóðlegur dagur vatnsins 22. mars 2021
Þegar þorsti sækir að okkur Íslendingum röltum við að næsta krana og fáum okkur hreint og kalt vatn. Við þvoum á okkur hendurnar með sápu og hreinu vatni og förum reglulega í sturtu eða leggjumst í heitt bað. En gerum við okkur í raun og veru grein fyrir þeim lífsgæðum sem við búum við hér […]
Áramótakveðja
Kæru stuðningsaðilar, við óskum ykkur gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir stuðninginn á árinu sem leið. Við höldum ótrauð áfram veginn og förum með tilhlökkun inn í árið 2021 þar sem við munum halda áfram okkar starfi með ykkar hjálp.
Að láta gott af sér leiða!
Í dag, 24. október, er alþjóðlegur dagur „make a difference“ sem er fyrir mér að láta gott af sér leiða eða hafa áhrif. Mér var hugsað til allra vina okkar í Afríku og Asíu sem hafa sinnt börnum í vonlausum aðstæðum af bæði hugsjón og kærleika. Hugsjónafólk sem vildi láta gott af sér leiða stofnuðu samtökin ABC barnahjálp […]
Daniel G. Calaor
Maðurinn í miðjunni er Daniel G. Calaor, fyrrverandi stuðningsbarn á Filippseyjum. Hann miðlar til okkar sinni dýrmætu innsýn og hinum einstaka árangri sínum. Áður fyrr dreymdi hann bara um að ljúka námi og nú hefur hann lokið náminu með frábærum árangri. Hann lauk BS námi í endurskoðun með hæstu einkunn í apríl 2018 og stóðst […]
15. júlí dagur þekkingar og kunnáttu ungs fólks
Það er óhugnanleg staðreynd að eitt af hverjum fimm ungmennum í heiminum sé hvorki í námi, starfi né starfsþjálfun. Á síðasta ári var fjöldi ungmenna (á aldrinum 15 til 24 ára) í þessari stöðu 267 milljónir og gera Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) ráð fyrir að fjöldinn verði 273 milljónir á næsta ári. Þetta er afleit þróun […]
Ákall um aðstoð á tímum Covid-19
Ákall um aðstoð við að kaupa matarpakka fyrir fjölskyldur okkar barna á tímum Covid-19Heimsfaraldurinn sem nú geisar snertir allt mannkyn. Hvar sem borið er niður eru áhrifin víðtæk og misjafnt hvaða burði þjóðir hafa til að bregðast við ástandinu. Sá hópur sem verður hvað verst úti eru þeir sem búa við viðvarandi skort, þar á […]