Börn hjálpa börnum 2010

Söfnunin í ár gekk vonum framar og nú þegar allir skólar hafa skilað inn afrakstri söfnunarinnar er upphæðin komin í 9.358.399 kr sem er hærri upphæð en nokkru sinni fyrr í þessari árlegu söfnun. Alls tóku 3.532 börn í 116 skólum þátt. 

Hluti söfnunarfésins verður notað til að kaupa sólarofna fyrir fátækar fjölskyldur í Burkina Faso en stærsti hlutinn verður notaður til að byggja grunnskóla fyrir börnin á El Shaddai heimilinu í borginni Chennai í Tamil Nadu héraði á Indlandi.

Við viljum þakka öllum sem þátt tóku í söfnuninni, börnunum og kennurum þeirra og öllum þeim sem gáfu í baukana okkar.


 

Skóli pn staður Fjöldi upphæð
Austurbæjarskóli 101 Reykjavík 44

58.315

Vesturbæjarskóli 101 Reykjavík 40

84.705

Langholtsskóli 104 Reykjavík 55

128.132

Vogaskóli 104 Reykjavík 31

75.250

Háteigsskóli 105 Reykjavík 43

133.017

Laugarnesskóli 105 Reykjavík 72

185.436

Grandaskóli 107 Reykjavík 41

85.402

Melaskóli 107 Reykjavík 80

203.054

Álftamýrarskóli 108 Reykjavík 80

134.118

Breiðagerðisskóli 108 Reykjavík 31

119.100

Fossvogsskóli 108 Reykjavík 48

202.582

Breiðholtsskóli 109 Reykjavík 50

95.495

Seljaskóli 109

Reykjavík

63

160.546

Ölduselsskóli 109 Reykjavík 47

172.212

Ártúnsskóli 110 Reykjavík 20

54.946

Hólabrekkuskóli 111 Reykjavík 60

130.488

Borgaskóli 112 Reykjavík 25

46.866

Engjaskóli 112 Reykjavík 25

52.822

Foldaskóli 112 Reykjavík 36

140.757

Húsaskóli 112 Reykjavík 21

91.111

Rimaskóli 112 Reykjavík 60

132.191

Ingunnarskóli 91 113 Reykjavík 91

114.292

Klébergsskóli 116 Reykjavík 16

34.942

Tjarnarskóli 121 Reykjavík 45

53.831

Grunnskóli Seltjarnarness 170 Seltjarnarnes 60

134.556

Stóru-Vogaskóli 190 Vogar 25

59.740

Kársnesskóli 200 Kópavogur 40

150.037

Snælandsskóli 200 Kópavogur 35

71.320

Smáraskóli 201 Kópavogur 28

85.908

Hörðuvallaskóli 203 Kópavogur 33

95.729

Vatnsendaskóli 203 Kópavogur 37

103.204

Flataskóli 210 Garðabær 66

69.562

Hofsstaðaskóli 210 Garðabær 60

200.542

Sjálandsskóli 210 Garðabær 28

111.596

Engidalsskóli 220 Hafnarfjörður 38

79.562

Hvaleyrarskóli 220 Hafnarfjörður 40

75.024

Lækjarskóli 220 Hafnarfjörður 50

92.063

Víðistaðaskóli 220 Hafnarfjörður 41

117.326

Öldutúnsskóli 220 Hafnarfjörður 51

128.691

Áslandsskóli 221 Hafnarfjörður 62

82.980

Hraunvallaskóli 221 Hafnarfjörður 68

80.359

Álftanesskóli 225 Álftanes 40

137.790

Heiðarskóli 230 Reykjanesbær 45

104.630

Holtaskóli 230 Reykjanesbær 42

89.863

Myllubakkaskóli 230 Reykjanesbær 40

84.478

Njarðvíkurskóli (Háaleitisskóli) 235 Reykjanesbær

14

11.268

Grunnskólinn í Sandgerði 245 Sandgerði 25

46.473

Akurskóli 260 Reykjanesbær 40

43.814

Njarðvíkurskóli 260 Reykjanesbær 32

50.871

Lágafellsskóli 270 Mosfellsbær 64

124.436

Varmárskóli 270 Mosfellsbær 57

138.774

Brekkubæjarskóli 300 Akranes 45

125.084

Grundaskóli 300 Akranes 60

187.531

Grunnskólinn í Borgarnesi 310 Borgarnes 28

104.148

Grunnskóli Borgarfjarðar 311 Borgarnes 9

41.875

Grunnskóli Borgarfjarðar 311 Borgarnes 7

21.636

Grunnskólinn í Stykkishólmi 340 Stykkishólmur 16

80.270

Grunnskóli Grundarfjarðar 350 Grundarfjörður 15

59.877

Grunnskóli Snæfellsbæjar 355 Ólafsvík 14

44.779

Lýsuhólsskóli 356 Snæfellsbær 9

21.435

Skátafélagið Stígandi 371 Búðardalur 10

45.569

Reykhólaskóli 380 Reykhólahreppur 7

24.723

Grunnskóli Bolungarvíkur 415 Bolungarvík 25

81.556

Súðavíkurskóli 420 Súðavík 14

21.670

Grunnskólinn Suðureyri 430 Suðureyri 9

20.302

Grunnskóli Vesturbyggðar 450 Patreksfjörður 6

45.102

Grunnskóli Tálknafjarðar 460 Tálknafjörður 12

23.102

Grunnskóli Vesturbyggðar 465 Bíldudal 5

11.838

Grunnskólinn á Þingeyri 470 Þingeyri 11

30.036

Grunnskólinn á Borðeyri 500 Staður 7

11.907

Grunnskólinn á Drangsnesi 520 Drangsnes 10

13.412

Finnbogastaðaskóli 523 Bær 3

10.612

Grunnskóli Húnaþings vestra 530 Hvammstangi 17

54.736

Höfðaskóli 545 Skagaströnd 9

37.644

Grunnskólinn austan Vatna 551 Sauðárkrókur 7

38.979

Grunnskóli Siglufjarðar 580 Siglufjörður

14

115.589

Lundarskóli 600 Akureyri 57

153.443

Oddeyrarskóli 600 Akureyri 13

37.757

Hrafnagilsskóli 601 Akureyri 21

106.430

Valsárskóli 601 Akureyri 15

61.914

Giljaskóli 603 Akureyri 42

100.935

Glerárskóli 603 Akureyri 42

83.198

Síðuskóli 603 Akureyri 39

92.740

Grenivíkurskóli 610 Grenivík

14

52.983

Grunnskólinn í Grímsey 611 Grímsey 4

3.013

Árskógarskóli 621 Dalvík 13

16.797

Grunnskóli Ólafsfjarðar 625 Ólafsfjörður 14

68.225

Grunnskólinn í Hrísey 630 Hrísey 8

17.123

Borgarhólsskóli 640 Húsavík 30

150.008

Litlulaugaskóli 650 Laugar 8

34.502

Grunnskólinn á Raufarhöfn 675 Raufarhöfn 6

28.595

Grunnskólinn á Þórshöfn 680 Þórshöfn 17

30.836

Vopnafjarðarskóli 690 Vopnafjörður 9

43.334

Egilsstaðaskóli 700 Egilsstaðir 31

177.278

Fellaskóli, Fellabæ 700 Egilsstaðir

25

39.458

Seyðisfjarðarskóli 710 Seyðisfjörður

8

32.707

Grunnskóli Mjóafjarðar 715 Mjóifjörður

5

9.628

Grunnskóli Borgarfjarðar eystri 720 Borgarfjörður 4

12.026

Grunnskóli Reyðarfjarðar 730 Reyðarfjörður

17

64.859

Grunnskólinn á Eskifirði 735 Eskifjörður 18

56.141

Nesskóli 740 Neskaupstaður 24

104.597

Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar 750 Fáskrúðsfjörður 27

64.373

Grunnskólinn á Stöðvarfirði 755 Stöðvarfjörður

9

13.069

Grunnskólinn í Breiðdalshreppi 760 Breiðdalsvík 5

13.667

Grunnskóli Djúpavogs 765 Djúpavogi 3

41.818

Grunnskóli Hornafjarðar / Hafnarskóli 780 Höfn í Hornafirði 35

103.030

Grunnskólinn í Hofgarði 785 Öræfi 3

20.706

Sunnulækjarskóli 800 Selfoss 30

107.340

Vallaskóli 800 Selfoss 69

242.153

Grunnskólinn í Hveragerði 810 Hveragerði 38

79.934

Grunnskólinn í Þorlákshöfn 815 Þorlákshöfn 28

86.120

Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri 820 Eyrarbakki 12

28.328

Flúðaskóli 845 Flúðir 14

47.528

Hvolsskóli 860 Hvolsvöllur 26

91.762

Grunnskóli Mýrdalshrepps 870 Vík 15

28.999

Grunnskóli Vestmannaeyja 900 Vestmannaeyjar 80

277.427

3532

9.358.399



Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson tók á móti 30 grunnskólabörnum úr Álftanesskóla mánudaginn 15. febrúar. Börnin eru fulltrúar þeirra barna sem munu á næstu dögum og vikum ganga í hús og safna fé til hjálpar börnum á Indlandi og Burkina Faso. Einnig er hægt að leggja inn á reikning söfnunarinnar nr. 515-14-110000, kt. 690688-1589. Nánari upplýsingar má finna á www.abc.is.

Söfnunin stendur til 20. mars og er ætlunin að safna fyrir brýnustu þörfum í ABC barnahjálp.

Lögð verður áhersla á að safna fyrir:
Bygging barnaskóla á Indlandi og alvöru búsáhaldabylting í Burkina Faso er meðal þess sem safnað verður fyrir í söfnuninni Börn hjálpa börnum 2010.

Börn hjálpa börnum, árlegt söfnunarátak ABC barnahjálpar fer nú fram í 13. sinn og taka á fjórða þúsund börn í á annað hundrað grunnskólum þátt í söfnuninni með því að ganga í hús og safna fjárframlögum í bauka. Barnaskóla á Indlandi sem mun þjóna um 250 börnum sem búa á El Shaddai barnaheimilinu í Tamil Nadu á Suður-Indlandi, en ABC barnahjálp setti heimilið á fót árið 1995 og hefur rekið það síðan. Heimilið hefur leyfi til að reka skóla við heimilið og er starfræktur skóli á heimilinu fyrir flest börnin. Mjög brýnt er nú að byggja fullnægjandi skólahúsnæði til þess að leyfið verði ekki afturkallað.

Börnin sem dvelja á heimilinu hafa komið úr mjög slæmum aðstæðum og eiga ekki í önnur hús að venda.

Áætlaður kostnaður við rúmlega 200 fermetra skólahúsnæði er um níu og hálf milljón kr.


  1. Einnig verður safnað fyrir 150 sólarofnum fyrir fátækar fjölskyldur í Burkina Faso. Hver ofn kostar um 5000 - 6000 kr. og getur slíkur ofn gerbreytt lífi fjölskyldu til hins betra.

Fyrstu 150 ofnarnir verða afhentir fjölskyldum barnanna í ABC skólanum, en þar sem fjölskyldurnar borga ofnana smám saman til baka geta aðrar 150 fjölskyldur fengið slíkan ofn fyrsti hópurinn hefur greitt fyrir ofnana sína.

Kostir við slíka ofna eru fjölmargir:

  • - Sparar fjölskyldum bæði vinnu, tíma og peninga þar sem ekki þarf lengur að sækja/kaupa eldivið. Þetta dregur úr óæskilegri vinnu barna og eykur líkur á að það séu til peningar fyrir mat.
  • -Dregur úr óæskilegu skógarhöggi og tilheyrandi jarðvegseyðingu, sem er sérstaklega mikilvægt í Burkina Faso þar sem þjóðin heyr harðvítuga baráttu við eyðimörkina sem færist nokkra kílómetra lengra inn í landið á hverju ári.
  • -Dregur úr mengun. Sólarofninn nýtir eingöngu sólarorkuna og er án mengunar í stað þess að nú er alls staðar eldað á eldiviði sem skapar mikinn reyk og mengun, sem er sérstaklega heilsuspillandi ef eldað er innan dyra.
  • -Getur virkað sem atvinnutæki þar sem hægt er að baka í honum brauð og kökur sem hægt væri að selja á markaðinum.
  • -Hitnar ekki að utan og því minni líkur á að börn og fullorðnir brenni sig við eldamennskuna heldur en þegar er eldað á opnum eldi.
  • -Heldur jöfnum hita á matnum, ekki þarf að hræra í pottinum og engin hætta er á að maturinn brenni við.
  •  -Er framleiddur í Burkina Faso og framleiðsla hans skapar atvinnu í landinu þar sem flestir eru atvinnulausir.
  •  -Er ódýr og virkar sérstaklega vel í Burkina Faso þar sem sólin skín næstum alltaf.

Þar sem fjölskyldur ná að draga úr útgjöldum með notkun ofnsins og skapa tekjur þá eiga þær möguleika á að borga andvirði hans til baka á einhverjum tíma. Þetta skapar möguleika fyrir fleiri fjölskyldur að eignast ofn með slíkum hætti. Með litlu framlagi er því hægt að koma af stað alvöru búsáhaldabyltingu sem umbyltir lífi æ fleiri fjölskyldna til góðs.


ABC barnahjálp vill hvetja landsmenn til að leggja sitt af mörkum og taka vel á móti börnunum sem banka upp á.





Börn hjálpa börnum 2009

Söfnunin Börn hjálpa börnum tókst mjög vel. Alls tóku 113 skólar þátt í söfnuninni og 3200 börn gengu í hús með söfnunarbauka.  Alls söfnuðust um 8.2 milljónir sem sendar voru til ABC heimilanna og skólanna. Peningarnir voru notaðir til að kaupa mat fyrir skólamáltíðir fyrir börnin.

Með því að  styðja á slóðina hér á eftir má sjá myndir sem teknar voru þegar maturinn kom í hús.
myndir frá Úganda

Börn og kennarar Egilsstaðaskóla tóku mjög vel í söfnunina og auglýstu hana vel. Þau fóru meðal annars í viðtal hjá RUV.
Smelltu hér til að hlusta á viðtalið: http://dagskra.ruv.is/egilsstadir/4460166/2009/02/17/11/

 

Skóli pnr Staður fj.barna Upphæð safnaðist
Austurbæjarskóli 101 Reykjavík 59 101.644
Tjarnarskóli 101 Reykjavík 45 10.960
Langholtsskóli 104 Reykjavík 70 168.430
Vogaskóli 104 Reykjavík 25 95.640
Háteigsskóli 105 Reykjavík 38 187.850
Laugarnesskóli 105 Reykjavík 60 142.145
Grandaskóli 107 Reykjavík 36 85.145
Melaskóli 107 Reykjavík 100 151.923
Breiðagerðisskóli 108 Reykjavík 50 80.797
Fossvogsskóli 108 Reykjavík 45 229.863
Hvassaleitisskóli 108 Reykjavík 45 124.560
Breiðholtsskóli 109 Reykjavík 46 116.545
Seljaskóli 109 Reykjavík 60 145.407
Ártúnsskóli 110 Reykjavík 17 56.733
Norðlingaskóli 110 Reykjavík 17 67.331
Hólabrekkuskóli 111 Reykjavík 66 119.336
Borgaskóli 112 Reykjavík 24 44.742
Engjaskóli 112 Reykjavík 34 50.887
Foldaskóli 112 Reykjavík 34 95.080
Rimaskóli 112 Reykjavík 65 129.243
Ingunnarskóli 113 Reykjavík 72 73.560
Klébergsskóli 116 Reykjavík 15 25.770
Grunnskóli Seltjarnarness 170 Seltjarnarnesi 60 147.138
Stóru-Vogaskóli 190 Vogum 22 56.078
Hjallaskóli 200 Kópavogi 27 67.525
Kársnesskóli 200 Kópavogi 46 179.105
Snælandsskóli 200 Kópavogi 45 66.393
Smáraskóli 201 Kópavogi 40 79.159
Vatnsendaskóli 203 Kópavogi 31 102.046
Sjálandsskóli 210 Garðabæ 35 86143
Flataskóli 210 Garðabæ 39 79.405
Hofsstaðaskóli 210 Garðabæ 40 123.402
Víðistaðaskóli 220 Hafnarfirði 30 86.653
Öldutúnsskóli 220 Hafnarfirði 56 82.371
Hraunvallaskóli 221 Hafnarfirði 46 57.071
Álftanesskóli 225 Álftanesi 47 98.375
Lágafellsskóli 270 Mosfellsbæ 64 122.277
Varmárskóli 270 Mosfellsbæ 67 151.258
Heiðarskóli 230 Reykjanesbæ 62 185.642
Háaleitisskóli 235 Reykjanesbær 14 28.304
Grunnskólinn í Sandgerði 245 Sandgerði 50 31.291
Gerðaskóli 250 Garði 18 55.904
Akurskóli 260 Reykjanesbæ 26 77.161
Njarðvíkurskóli 260 Reykjanesbæ 35 54.270
Brekkubæjarskóli 300 Akranesi 46 113.990
Grundaskóli 300 Akranesi 72 161.223
Heiðarskóli 301 Akranesi 16 21129
Grunnskólinn í Borgarnesi 310 Borgarnesi 24 124.505
Grunnskóli Borgarfjarðar 311 Borgarnesi 16 63850
Varmalandsskóli 311 Borgarnesi 9 24.156
Grunnskólinn í Stykkishólmi 340 Stykkishólmi 15 68.687
Grunnskóli Grundarfjarðar 350 Grundarfirði 16 41.271
Grunnskóli Snæfellsbæjar, Lýsuhólsskóli 356 Snæfellsbæ 6 15.773
Reykhólaskóli 380 Reykhólahreppi 8 42.718
Grunnskóli Bolungarvíkur 415 Bolungarvík 25 43.645
Súðavíkurskóli 420 Súðavík 8 17.874
Grunnskólinn Suðureyri 430 Suðureyri 6 26.131
Grunnskóli Vesturbyggðar 450 Patreksfirði 7 43.105
Grunnskóli Tálknafjarðar 460 Tálknafirði 12 37.361
Patreksskól 465 Bíldudalur 7 12.947
Grunnskólinn á Þingeyri 470 Þingeyri 12 27.184
Grunnskólinn á Borðeyri 500 Brú 7 10.606
Grunnskólinn á Hólmavík 510 Hólmavík 17 28.566
Finnbogastaðaskóli 523 2 10.493
Grunnskóli Húnaþings vestra 530 Hvammstanga 18 58.837
Grunnskólinn á Blönduósi 540 Blönduósi 12 40.852
Árskóli 550 Sauðárkróki 37 124851
Grunnskóli Siglufjarðar 580 Siglufirði 18 115.040
Lundarskóli 600 Akureyri 60 174.279
Oddeyrarskóli 600 Akureyri 26 73.765
Hrafnagilsskóli 601 Akureyri 17 107.110
Valsárskóli 601 Akureyri 10 47.433
Giljaskóli 603 Akureyri 45 97.589
Glerárskóli 603 Akureyri 41 58.735
Síðuskóli 603 Akureyri 44 117.557
Grenivíkurskóli 610 Grenivík 11 47.470
Grunnskólinn í Grímsey 611 Grímsey 3 13.023
Grunnskóli Dalvíkurbyggða - Árskógarskóli - Dalvíkurskóli 621 Dalvík 28 113.862
Grunnskóli Ólafsfjarðar 625 Ólafsfirði 10 71.622
Grunnskólinn í Hrísey 630 Hrísey 6 14.237
Litlulaugaskóli 650 Laugum 8 38.974
Grunnskólinn á Raufarhöfn 675 Raufarhöfn 8 35.503
Grunnskólinn á Þórshöfn 680 Þórshöfn 17 26.720
Grunnskólinn á Bakkafirði 685 Langanesbyggð 8 9.723
Vopnafjarðarskóli 690 Vopnafirði 10 65.580
Fellaskóli, Fellabæ 700 Egilsstöðum 25 33.513
Grunnskólinn Egilsstöðum og Eiðum 700 Egilsstöðum 34 193.517
Hallormsstaðaskóli 701 Egilsstöðum 10 41.669
Seyðisfjarðarskóli 710 Seyðisfirði 8 76.437
Grunnskóli Mjóafjarðar 715 Mjóafirði 6 10.682
Grunnskóli Borgarfjarðar eystri 720 Borgarfirði 6 20.791
Grunnskóli Reyðarfjarðar 730 Reyðarfirði 19 77.005
Grunnskólinn á Eskifirði 735 Eskifirði 15 66.878
Nesskóli 740 Neskaupstað 18 84.108
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar 750 Fáskrúðsfirði 25 48.100
Grunnskólinn á Stöðvarfirði 755 Stöðvarfirði 9 18.960
Grunnskólinn í Breiðdalshreppi 760 Breiðdalsvík 8 12.481
Grunnskóli Djúpavogs 765 Djúpavogi 5 28.753
Grunnskóli Hornafjarðar (Heppuskóli, Hafnarskóli, Nesjaskóli ) 780 Höfn í Hornafirði 31 80.835
Grunnskólinn í Hofgarði 785 Öræfum 8 9.867
Vallaskóli 800 Selfossi 40 151627
Flóaskóli 801 Selfossi 13 20.054
Grunnskólinn í Hveragerði 810 Hveragerði 32 83.320
Grunnskólinn í Þorlákshöfn 815 Þorlákshöfn 28 92.233
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri 820 Eyrarbakka 17 56.511
Grunnskólinn Hellu 850 Hellu 13 36.149
Laugalandsskóli í Holtum 851 Hellu 14 24.488
Hvolsskóli 860 Hvolsvelli 20 56.813
Kirkjubæjarskóli 880 Kirkjubæjarklaustri 2 2.463
Grunnskóli Vestmannaeyja v/Bessahraun (Hamarsskóli og Barnaskóli) 900 Vestmannaeyjum 60 202.690
Skátafélagið Stígandi 34 41.098
Reykjanesbær 50.000
SAMTALS 3191 8.227.936


Börn hjálpa börnum 2009 - söfnun fyrir skólamáltíðum


Söfnunin Börn hjálpa börnum stendur yfir dagana 2.-28. febrúar í samvinnu við grunnskóla landsins. Að þessu sinni er safnað fyrir skólamáltíðum fátækra barna. Ein skólamáltíð kostar á núverandi gengi um 50 krónur og skólamáltíðir barns í einn mánuð kosta 1000 kr.

ABC barnahjálp stendur nú fyrir þessari söfnun í 11. skipti og munu grunnskólabörn ganga í hús með bauka frá ABC barnahjálp.

Á hverju ári hafa um 3000 börn í 100 skólum tekið þátt í þessari söfnun og hafa þau safnað samtals á sjöunda tug milljóna.

Söfnunarféð hefur verið notað á eftirfarandi hátt?

  • Byggt barnaheimili, kornabarnahús og íbúðarhús fyrir starfsfólk á El Shaddai heimilinu í Chennai Tamil Nadu á Indlandi en þar búa og stunda nám 180 börn.
  • Keypt land og byggður menntaskóli, barnaskóli og svefnskáli fyrir Heimilli litlu ljósanna í Andhra Pradesh á Indlandi en þar búa nú og stunda nám um 3400 börn.
  • Byggður forskóli og barnaskóli í Kitetika í Úganda þar sem um 1400 börn stunda nám
  • Byggður barnaskóli í Peshawar í Norður- Pakistan fyrir 250 börn.
  • Uppbygging ABC heimilis í Nairobi í Kenya þar sem 260 börn búa og stunda nám og heimavistar í Pakistan.

Það gefur auga leið að þessi söfnun gríðarlega mikilvæg fyrir ABC barnahjálp.


Vegna gegnisfalls íslensku krónunnar er rekstur skólanna og heimilanna orðinn gríðarlega erfiður og hafa samstarfsaðilar ABC þurft að draga saman seglin. Í mörgum skólum hefur til dæmis ekki verið hægt að gefa börnunum hádegismat en í mörgum tilfellum er þessi máltíð sú eina sem börnin fá yfir daginn.

Í ár ætla því íslensku skólabörnin að safna fyrir máltíðum fyrir ABC börnin okkar og verður stefnt að því að safna fyrir að lágmarki 160.000 máltíðum.

Við hvetjum alla landsmenn til veita starfi ABC lið með því að taka vel á móti þessum frábæru krökkum þegar þau banka uppá með baukana sína.


Einnig er hægt að leggja beint inn á söfnunarreikninginn:

515-14-110000, kt. 690688-1589

eða gerast

áskrifandi að skólamáltíðum barns  

skrá mig í áskrift að skólamáltíðum


 

Söfnunin 2008


Söfnunin Börn hjálpa börnum 2008 hófst föstudaginn 1. febrúar kl. 11.30 á Bessastöðum er forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson setti söfnunina formlega í viðurvist 24 barna úr 4. bekk Rimaskóla með því að láta framlag sitt í bauka barnanna.

Söfnunin Börn hjálpa börnum er árlegt söfnunarátak ABC barnahjálpar og var fyrst sett af stað fyrir 10 árum, þá á 10 ára afmælisári ABC barnahjálpar, en ABC barnahjálp er nú 20 ára. Söfnunin í ár tókst ákaflega vel. Alls tóku 3.061 barn úr 101 skóla þátt í söfnuninni í ár og söfnuðust 8.666.233 kr.

Skóli fjöldi barna Upphæð
Austurbæjarskóli 47 149.120
Akurskóli 32 73.843
Álftamýrarskóli 46 85.063
Álftanesskóli 48 129.756
Árskógarskóli 16 31.944
Ártúnsskóli 21 86.188
Áslandsskóli 190.000
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri 13 22.048
Bíldudalsskóli 4 10.031
Borgarhólsskóli 34 123.721
Breiðagerðisskóli 39 128.421
Breiðholtsskóli 30 126.194
Brekkubæjarskóli 58 128.660
Dalvíkurskóli 28 74.104
Engjaskóli 21 96.068
Fellaskóli, Fellabæ 13 31.676
Finnbogastaðaskóli 3 10.003
Flataskóli 70 79.637
Foldaskóli 41 154.784
Fossvogsskóli 48 177.696
Gerðaskóli 32 81.320
Giljaskól 37 110.928
Glerárskóli 30 107.051
Grandaskóli 30 20.668
Grenivíkurskóli 15 57.611
Grundaskóli 45 182.983
Grunnskóli Bolungarvíkur 13 56.545
Grunnskóli Borgarfjarðar eystri 9 25.253
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar 32 49.808
Grunnskóli Grindavíkur 40 94.908
Grunnskóli Grundarfjarðar 15 63.377
Grunnskóli Hornafjarðar 28 107.352
Grunnskóli Húnaþings vestra 20 51.861
Grunnskóli Mjóafjarðar 4 7.426
Grunnskóli Ólafsfjarðar 11 66.335
Grunnskóli Raufarhafnar 8 14.478
Grunnskóli Reyðarfjarðar 18 63.051
Grunnskóli Siglufjarðar 18 137.839
Grunnskólinn á Bakkafirði 9 5.888
Grunnskólinn á Borðeyri 7 21.628
Grunnskólinn á Eskifirði 19 80.341
Grunnskólinn á Hellu 12 55.070
Grunnskólinn á Hofsósi 12 37.605
Grunnskólinn á Hólmavík 15 39.713
Grunnskólinn á Þingeyri 12 24.738
Grunnskólinn á Þórshöfn 6 29.831
Grunnskólinn Egilsstöðum og Eiðum 41 255.337
Grunnskólinn í Borgarnesi 36 139.341
Grunnskólinn í Breiðdalshreppi 4 12.155
Grunnskólinn í Grímsey 3 12.796
Grunnskólinn í Hrísey 6 16.600
Grunnskólinn í Hveragerði 27 88.529
Grunnskólinn í Sandgerði 28 37.600
Grunnskólinn í Stykkishólmi 12 75.219
Grunnskólinn í Þorlákshöfn 22 68.091
Grunnskólinn Tálknafirði 12 26.113
Hamarsskóli Vestmannaeyjum 78 203.901
Hamraskóli 64 93.707
Heiðarskóli 42 129.025
Hofsstaðaskóli 40 110.963
Holtaskóli 50 112.420
Hólabrekkuskóli 14 48.436
Hrafnagilsskóli 25 111.958
Hraunvallaskóli 48 109.410
Húsaskóli 31 96.069
Hvaleyrarskóli 32 67.623
Hvassaleitisskóli 37 135.640
Hvolsskóli 22 43.634
Höfðaskóli 10 25.623
Ingunnarskóli 80 120.955
Kársnesskóli 45 93.120
Klébergsskóli 13 24.925
Korpuskóli 23 72.665
Langholtsskóli 50 162.134
Laugarnesskóli 72 130.186
Lágafellsskóli 54 161.523
Litlulaugaskóli 8 43.615
Lundarskóli 47 86.724
Lýsuhólsskóli 3 9.364
Melaskóli 162 441.751
Myllubakkaskóli 30 106.234
Mýrarhúsaskóli 60 169.272
Nesskóli 10 77.293
Njarðvíkurskóli 40 123.484
Norðlingaskóli 22 37.595
Oddeyrarskóli 26 45.566
Patreksskóli (Grunnskóli Vesturbyggðar) 7 40.909
Reykhólaskóli 9 28.670
Rimaskóli 72 171.685
Seljaskóli 73 81.737
Síðuskóli 39 102.041
Skátafélagið Stígandi 23 31.112
Smáraskóli 45 96.068
Snælandsskóli 50 70.544
Súðavíkurskóli 14 36.308
Valsárskóli 10 39.540
Varmárskóli 73 168.117
Vatnsendaskóli 42 138.218
Víðistaðaskóli 38 73.106
Víkurskóli 28 77.643
Vogaskóli 38 81.374
Samtals 3061 8.666.233



Forseti Íslands herra Ólafur Ragnar Grímsson tók á móti börnum úr 4. bekk í Rimaskóla.






Á síðari árum hafa að jafnaði um 3000 börn í um 100 grunnskólum tekið þátt í söfnuninni. Í söfnuninni í fyrra söfnuðu börnin rúmum 7 milljónum og fyrir það fé var byggð heimavist í Úganda fyrir 200 stúlkur, auk þess sem húsbúnaður var keyptur til að setja upp heimavistaraðstöðu fyrir börn í Pakistan þar sem eru 360 börn í heimavistum ABC og á barnaheimili ABC í Kenýa þar sem eru um 200 börn. Í lok þeirrar söfnunar bætti utanríkisráðuneytið við 12 milljónum króna til að kaupa land undir frekari uppbyggingu skólastarfs ABC í Pakistan en núna eru átta ABC skólar með samtals 1800 börnum eru starfræktir.

Fyrir söfnunarféð sem safnast í ár er áætlað að byggja heimavist og skóla á nýja landinu í Pakistan auk heimilis fyrir götubörn í Kenýa, en þar er verið að ganga frá kaupum á landi fyrir skóla og heimili fyrir munaðarlaus og yfirgefin börn. Staðið hefur til í nokkurn tíma að byggja skóla og heimili nokkuð fyrir utan Nairobi en ástandið undanfarnar vikur hefur gert málið enn brýnna þar sem fjöldi munaðarlausra og heimilislausra barna hefur stóraukist vegna styrjaldarástands í kjölfar forsetakosninganna.

Börn munu ganga í hús með merkta og númeraða söfnunarbauka og mun allt fé sem safnast renna til byggingar heimavista og skóla í Pakistan og Kenýa. Söfnunin mun standa allan febrúarmánuð og er bankareikningur söfnunarinnar nr. 515-14-110 000, kt. 690688-1589. Auk söfnunar fjár til bygginga verður leitast við að fá fólk til að gerast stuðningsaðila barnanna sem hafa fengið skjól og tækifæri til náms á heimilum og skólum ABC. 1950 kr. á mánuði kostar að greiða fyrir skólagöngu barna með mat og læknisaðstoð, 3250 kr. á mánuði að greiða fyrir fulla framfærslu og menntun barns á heimavist eða heimili ABC. Hægt er að finna barn sem vantar stuðning á slóðinni www.abc.is eða á skrifstofu ABC í Síðumúla 29. Einnig er hægt að hringja í s. 414-0990 og láta skrá sig sem stuðningsaðila barns.



Börn í Bolungarvík safna 110.000 kr fyrir ABC í Kenýa 

Komið þið sæl og blessuð,

Við erum glöð að segja ykkur að við héldum ?ABC markaðstorg? í skólanum okkar í gær. Allir nemendur skólans horfðu á Kompás þátt Loga Bergmann frá heimsókn hans til Þórunnar Helgadóttur. VIð urðum öll snortin og í kjölfarið á því kviknaði hugmyndin að því að halda ABC ? markaðstorg. Þar var m.a. menning eldri tíma flutt til nýrri kynslóðar, en mörg barnanna þekktu ekki hlutaveltu /tombólu fyrir. Þau söfnuðu með miklum ákafa vinningum og æfðu skemmtiatriði til að sýna á markaðstorginu. Þá sýndum við Kompás þáttinn á stórum skjá. Ekki var að spyrja að því að foreldrar og fjöldinn allure af Bolvíkingum styrktu málefnið með komu sinni á ABC- markaðstorgið. Rífandi stemming var og mikil keppni í söfnuninni. Nýjustu tölur birtust með reglulegu millibili á vegg í salnum og mikil spenna. Lokatala voru rétt tæp 110.000.-

Því viljum við biðja ykkur um að gefa okkur upp reikningsnúmer sem við getum lagt inn á. Þá væri einnig afar gaman að fá kveðju frá ykkur þar sem við getum sagt nemendum hvað hægt væri að gera fyri þessa peninga.

Með bestu kveðju (ekki síst til Þórunnar Helgadóttur)

Og von um stöðugt vaxandi starf.

Soffía Vagnsdóttir

Skólastjóri Grunnskóla Bolungarvíkur

Nemendur, kennarar og starfsfólk


 

Börn hjálpa börnum 2007


 

Söfnunin í ár fór afar vel fram. Borgarstjóri og borgarfulltrúar hófu söfnunina að viðstöddum fjölmiðlum þegar hópur barna úr Melaskóla kom í Ráðhús Reykjavíkur með söfnunarbauka. Alls tóku 2874 börn frá 100 skólum þátt í söfnuninni og söfnuðu þau  alls 7,4 milljónum króna. Utanríkisráðherra ,Valgerður Sverrisdóttir tilkynnti síðan um rausnarlegt framlag utanríkisráðuneytisins að upphæð 12 milljónir. Söfnunarfénu verður varið til byggingar á heimavist fyrir börn í Pakistan, Kenýa og Úganda.

ABC vill koma á framfæri innilegu þakklæti til barnanna,  kennara og skólastjórnenda og til allra þeirra sem gáfu í söfnunina.

Börn í Pakistan 

Safnað var fyrir áframhaldandi uppbyggingu skólastarfs í Pakistan. ABC barnahjálp hóf starf meðal fátækra barna í Pakistan í ágúst 2005. Auk byggingu þeirra þriggja skóla sem voru vígðir í desember 2006 eru tveir til viðbótar í undirbúningi, annar kostaður fyrir söfnunarfé frá Borgarholtsskóla og hinn frá Fjölbrautarskólanum við Ármúla.

Geysileg þörf er fyrir þessa skóla í Pakistan en mörg hundruð börn eru á biðlista eftir skólaplássi.

Þörfin fyrir heimavist er jafnvel enn brýnni, en yfir 200 börn eru nú í heimavistum ABC í bráðabirgðahúsnæði og yfir 500 börn til viðbótar eru á biðlista eftir að komast inn á heimavist þar sem þau komast ekki í skóla nema þau geti búið á staðnum.

Þórunn Helgadóttir var í Pakistan vorið 2005 og kynnti sér sérstaklega kjör fátækra minnihlutahópa í Pakistan, s.s. kristinna og hindúa og komst að því að aðeins um 10% þeirra barna höfðu tök á að ganga í skóla sökum fátæktar. Mikið er um að börn sem ekki komast í skóla lendi í vinnuánauð.

Forgangsmálið í Pakistan er að fá land og byggja heimavistir og skóla.


Börn í Kenýa

Þórunn Helgadóttir hefur verið í Kenýa undanfarna mánuði að vinna meðal barna í verstu fátækrahverfum Nairobi. Hún hefur nú sett upp heimavist í leiguhúsnæði fyrir munaðarlaus og yfirgefin börn en daglega bætast við börn í brýnni þörf sem eru tekin inn á heimavistina. Neyðin þarna er óskapleg og Þórunn lýsir ástandinu svipað og var á Titanic, þar sem allir reyna að komast í eina björgunarbátinn sem hún hefur upp á að bjóða og hún verður að vísa fjölmörgum frá í brýnni þörf þar sem úrræðin eru takmörkuð. Fjölmörg munaðarlaus börn þurfa hjálp, mæður með alnæmi að deyja frá börnum sínum o.s.frv. Við erum komin með um 150 börn þarna í skóla og af þeim höfum við tekið um 30 börn inn á heimavistina.

Forgangsmálið er að geta útvegað börnum skólagöngu og heimavist og mun bæði verða notast við leiguhúsnæði og eins er stefnt að því að kaupa land og byggja. Börnin koma allslaus til okkar og er stofnkostnaðurinn við að taka við barni um 3000 kr. fyrir barn sem er styrkt í skóla en 8000 kr. fyrir barn sem kemur inn í heimavist en þá þarf að kaupa dýnu, rúmföt, ábreiðu, föt o.fl.


Börn í Úganda

Við erum nú að safna fyrir byggingu heimavista fyrir stúlkur í Norður-Úganda. Geysileg þörf er hér einnig og verður haldið áfram að byggja heimavistir ef nokkur möguleiki er á. Sem dæmi um verð kostar 10.000 kr. að byggja heimavist fyrir eina stúlku í Úganda og smíða koju. Heimavistirnar taka 200 stúlkur og kosta 2.000.000 kr. með kojum.

Söfnunarféð rennur óskert til hjálpar börnum í neyð í ofangreindum löndum.

 

Hverjir studdu söfnunina í ár

Utanríkisráðuneytið, borgarstjóri, skólastjórar, kennarar, börn úr grunnskólum og tónlistarskólum, fyrirtæki, foreldrar, fréttamenn o.fl.

 

ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is

 

 



Söfnunarreikningurinn

fyrir söfnunina

Börn hjálpa börnum

er nr. 515-14-110000
kt. 690688-1589