ABC hjálparstarf var stofnað árið 1988 sem íslenskt, kristið hjálparstarf.

 

Tilgangurinn með stofnun þess var að veita nauðstöddum börnum varanlega hjálp og vera farvegur fyrir framlög gjafmildra Íslendinga sem skila sér óskert til umkomulausra barna í fátækari löndum.

 

ABC barnahjálp styrkir nú um 12.000 börn með hjálp íslenskra og nú einnig erlendra fósturforeldra, aðallega á Indlandi, Úganda, Filippseyjum, Pakistan og Kenýa. Um 7000 stuðningsaðilar styðja börn á vegum starfsins í dag. Aðeins einn aðili stendur að baki hverju barni.

 

Hjálpin sem veitt er felst aðallega í menntun barna sem annars ættu ekki kost á skólagöngu, en einnig er þeim séð fyrir læknishjálp, framfærslu og heimili þar sem þörf er á. Í mars 2004 var tekin ákvörðun um að breyta nafni starfsins í ABC barnahjálp sem lýsir enn betur starfseminni.

 

ABC barnahjálp er sjálfseignarstofnun og skilar endurskoðuðum ársreikningum til Ríkisendurskoðunar ár hvert.

 

 

 

Aðalskrifstofa ABC barnahjálpar er staðsett í Síðumúl 29, 108 Reykjavík. Skrifstofan er opin frá kl 09:00 til 16:00, mánudaga til föstudaga.

ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is