Brýnustu þarfir

Flóðin í Pakistan

ABC skólarnir eru staðsettir í borgum og þorpum í Punjab og Khyber Pakhhtunkhwa héruðum sem orðið hafa illa úti í flóðunum. Skólarnir í Peshawar, Gujaranwala, Farooqabak, Chak 96 R/B og Jarnawala hafa orðið fyrir skemmdum vegna flóðanna og hefur ekki verið hægt að stunda kennslu í marga daga.  Mjög brýnt er að gera við þessar byggingar hið allra fyrsta til að fyrirbyggja algjörga eyðileggingu og til að geta hafið skólastarf sem fyrst.  Við höfum ekki fengið nákvæmar upplýsingar um tjón hjá fjölskyldum skólabarnanna okkar. Verið er að kanna aðstæður þeirra en vegna flóðanna er mjög erfitt að komast á milli staða.

Hægt er að taka þátt í söfnuninni með því að leggja inn á söfnunarreikninginn.

515-14-110000 kt. 6906881589

 

skólastofurnar í Machike heimavistinni (Farooqabad)


Söfnun fyrir skólabyggingu í Pakistan

ABC barnahjálp stendur enn frammi fyrir ótal brýnum þörfum og er næsta forgangsatriði hjá ABC barnahjálp að safna fyrir nýrri skólabyggingu í Pakistan.

 


Í Pakistan ganga 3000 börn í 13 ABC skóla sem komið hefur verið á fót fyrir fjármuni frá Íslandi. Nýjasti skólinn er heimavistarskóli. Skólinn okkar fyrir heimavistirnar er rekinn í bráðabirgðahúsnæði sem er lítið meira en tjöld. Fyrsti veturinn reyndist nemendunum erfiður vegna kulda og þurfti að dúða börnin inn í teppi og gefa þeim heitt að drekka til að reyna að halda á þeim hita en hitinn fer stundum niður fyrir 5°C á veturna. Mikil þörf er á að byggja framtíðarskólahúsnæði þarna áður en næsti vetur gengur í garð en 700 börn, sem eiga enga aðra von um að komast í skóla, stunda nám í þessum skóla. Áætlaður byggingarkostnaður er um 12-15 milljónir króna.  


ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is

 

 



Söfnunarreikningur

 

515-14-110 000
kt. 6906881589