TILKYNNING
Vegna breytinga í umhverfi þarf núna að keyra þessa vefeiningu með https: https://regsupport.abc.is/addons/childInNeedOfSupport.aspx
ABC vefeining
Ef þú ert með vefsíðu eða hefur umsjón með vefsíðu þá getur þú hjálpað okkur að láta rödd óstuddra barna heyrast. Við hjá ABC barnahjálp erum með vefeiningu sem hægt er að birta á hvaða vef sem er.
Vefeiningin birtir eitt af þeim börnum sem vantar hjálp og býður fólki að hjálpa í fáum, einföldum skrefum. Þú sérð dæmi um þessa vefeiningu í notkun hér neðar á þessari síðu.
E.t.v. finnst þér of mikið að vera alltaf með þessa auglýsingu frá ABC, þá er hægt að gefa ABC þá gjöf að birta þetta á vefsíðunni í tiltekinn tíma, t.d. einn mánuð á hverju ári.
Gott er að senda línu á abc(hjá)abc.is og láta vita ef vefeiningin er notuð.