Þann 18. október 2009 stofnaði ungur drengur Ágúst Örn Ingason síðu á facebokk sem hét "Ef 15.þúsund joina fyrir 21.mars þá mun ég gefa ABC 50.000kr af fermingarpeninginum mínum!" Þessi síða vakti mikla athygli og fór eins og eldur um sinu um facebook heim. Mikill fjöldi manns lét velþóknun sína í ljós og að lokum höfðu alls 27.587 meðlimir skráð sig. Þann 6. apríl stóð Ágúst Örn við heit sitt og mætti á skrifstofu ABC barnahjálpar með 50.000 kallinn sinn. Hann ákvað að nota peninginn til að styrkja 5 ára gamlan dreng frá Filippseyjum sem heitir Alene Antoni og býr í borginni Bacolod á Filippseyjum þar sem ABC rekur skóla fyrir fátæk börn. Fjárhæðin dugar til að kosta skólagöngu Alene í tæp tvö ár.
Golf til góðverka
Golf18.is hefur gert samstarfssamning við ABC barnahjálp.
Samningurinn felur í sér að tvö golfmót sem Golf18 stendur fyrir í sumar heita "ABC bikarinn" og "ABC mótaröðin". ABC barnahjálp fær 500 krónur af þáttökugjaldi allra keppenda sem taka þátt í mótunum.
Logi Bergmann Eiðsson sendiherra
ABC í Kenýa er golfari og stýrir
átakinu "Golf til góðverka"
Samhliða verður hrint af stað átaki undir yfirskriftinni "Golf til góðverka" þar sem peningum verður safnað frá fyrirtækjum og einstaklingum og þannig leyfa öllum eigendum, framkvæmdastjórum og öðrum stjórnendum fyrirtækja, sem eru kylfingar eða hafa áhuga á golf íþróttinni, að vera með okkur í þessu átaki. Reikningur söfnunarinnar er 0344-13-041700 kt 690688-1589 og mun allt söfnunarfé renna í neyðarsjóð ABC.
Sr. Hjálmar Jónsson sóknarprestur
Dómkirkjunnar er golfari og er verndari
átaksins "Golf til góðverka"
ABC barnahjálp hefur ekki farið varhluta af « kreppunni » sem ríður yfir þjóðina okkar og heimsbyggðina alla. Stærsta vandamál okkar er gengissig íslensku krónunnar sem kemur hart niður á kaupum okkar á dollurum sem við sendum til heimila okkar og skóla.
Í sumar og haust sendum við stuðningsaðilum beiðni um að hækka gjaldið og þökkum við þeim sem það gerðu kærlega fyrir. Vonandi eru fleiri sem sjá sér fært að hækka gjaldið til stuðningsbarna sinna. Vinsamlegast hafið sambandi við abc@abc.is ef svo er.
Nýskráningum stuðningsaðila hefur fækkað til muna og eins hafa margir þurft að hætta að styðja ABC vegna fjárhagsvanda. Við höfum brugðist við þessu ástandi með því að biðja samstarfsaðila okkar um að draga saman seglin og finna leiðir til sparnaðar eins og hægt er. Margir þurfa að treysta á lánadrottna sem lána út á gott orðspor ABC. Öll uppbygging liggur niðri eins og er og leggjum við alla áherslu á að safna stuðningi við óstuddu börnin. Við reynum einnig að leggja meiri áherslu á uppbyggingu ABC dótturfélaga en ABC er um það bil að hefja starfsemi í Hollandi og á Bretlandseyjum og í farvatninu er ABC í Danmörku, ásamt ABC í Færeyjum og í Florida sem þegar hafa hafið starf.
ABC barnahjálp hefur fengið í lið frábæran hóp "sendiherra".
Það eru þau:
Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi,
Guðfinna Bjarnadóttir alþingismaður og fyrrverandi rektor HR,
Logi Bergmann Eiðsson fréttamaður,
Nína Dögg Filippusardóttir leikkona,
Ólafur Stefánsson handboltakappi,
Ragnar Bjarnason tónlistarmaður,
Selma Björnsdóttir leik- og söngkona,
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir lögfræðinemi og alheimsfegurðardrottning,
Valgerður Sverrisdóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra
Þorsteinn Sigfússon vísindamaður og prófessor við HÍ.
Hlutverk sendiherra ABC er fyrst og fremst að koma ABC á framfæri, lítill sem enginn peningur fer í beinar auglýsingar á ABC þannig að almennatengsl/PR skiptir mjög miklu máli. Sendiherrar ABC eru fulltrúar barnahjálparinnar og kynna starfsemi ABC og láta vita af þörfinni fyrir hjálp hvort sem það er í fjölmiðlum, á kynningarfundum, ferðum erlendis í heimsókn á ABC heimili/skóla eða í beinum auglýsingum. Grunnurinn af rekstri og hjálparstarfi ABC barnahjálpar er fjármagn, öll sem ein hjá ABC vinnum við að því að fá inn styrki til ABC.
Það sem skiptir mestu máli er að sem flestir vita af þörfinni og hvernig þeir geta hjálpað, því meiri líkur eru á því að fleiri láti gott af sér leiða og styrki ABC. En hlutverk sendiherra felst fyrst og fremst í neðangreindu:
* Jákvæður fulltrúi ABC barnahjálparinnar
* Kynna starfsemi ABC og láta vita af þörfinni fyrir hjálp
* Koma fram í fjölmiðlum
* Taka þátt í atburðum á vegum ABC
* Taka þátt auglýsingum fyrir ABC
* Taka þátt í heimsóknum til ABC heimila/skóla

ABC kvöld var á Sjónvarpsstöðinni Omega í þættinum Kvöldljós með Ragnari Gunnarssyni fimmtudagskvöldið 22. nóvember.
Margar brýnar þarfir eru í starfinu, bæði í Pakistan, Úganda, Kenýa og víðar.
Þetta kvöld var lögð áhersla á Kenýa, en starfið var sett af stað þar í október 2006 með skólagöngu 50 barna. Stefnt er að því að koma upp heimavist þar í desember og eru margar mjög aðkallandi þarfir sem brýnt er að mæta.
ABC dagur var á Útvarpsstöðinni Lindinni föstudaginn 20. október frá kl. 9-18. Á ABC degi á Lindinni fyrir u.þ.b. ári síðan var safnað framlögum til byggingar barnaskóla í Peshawar í Pakistan. Sá barnaskóli tók til starfa í bráðabirgðahúsnæði í janúar 2006, en skólabyggingin er nú í þann veginn að verða tilbúin til notkunar.
Á ABC deginum í ár var safnað fyrir stuðningsaðilum til að styðja börn til náms. Samtals fengu 52 börn í Pakistan og Kenýa stuðningsaðila þennan dag, þar af 42 heimavistarbörn. Auk þess var safnað fjármunum til að koma upp heimavist fyrir umkomulaus börn í Kenýa.
Mikill áhugi er hjá kennurum og nemendum Borgarholtsskóla að gefa þorpinu Jaranwala í Pakistan heilan barnaskóla. Þeir hafa staðið fyrir ýmsum uppákomum til að safna fyrir skólanum en fyrsta framlagið í söfnunina var frá fjölskyldu fatlaðs nemanda sem útskrifaðist frá Borgarholtsskóla vorið 2006. Á Grafarvogsdeginum stóð Borgarholtsskóli fyrir kaffisölu til styrktar ABC, haldnir voru tónleikar í Grafarvogskirkju þar sem ýmsir tónlistarmenn komu fram og síðast en ekki síst var byggð loftbrú til Pakistan þar sem á áttunda hundrað nemendur og kennarar Borgarholtsskóla ýmist gengu, hlupu eða hjóluðu tíu kílómetra hver eða samtals vegalengdina til Pakistan. Um 180 börn hófu nám í bráðabirgðahúsnæði í Jaranwala þann 1. september en Borgarholtsskóli vonast til að finna stuðningsaðila við skólabörnin í Jaranwala innan sinna raða. Gott framtak hjá Borgarholtsskóla!
Nemendur 9-R Rimaskóla tóku sig saman og gáfu ABC barnahjálp verðlaunafé sitt sem þau höfðu fengið frá Lýðheilsustöð fyrir verkefni sitt sem þau unnu sem reyklaus bekkur. Þetta voru 75.000 kr. og bætti Netbankinn við annarri eins upphæð þannig að gjöfin varð 150.000 kr. Þetta var frábært framtak hjá krökkunum sem tóku þetta fram yfir spennandi óvissuferð sem þau hefðu annars átt kost á.
Hjón úr Kópavogi höfðu samband við skrifstofu ABC fyrir jólin og vildu gefa um 2 milljónir króna til einhvers sérstaks verkefnis á vegum ABC barnahjálpar. Fyrir valinu varð að kosta byggingu skóla í þorpinu Chak 96 R/B í miðaustur Pakistan þar sem ABC hafði gert áætlun um að hefja skólastarf sem fyrst. Þessi gjöf gerði það að verkum að strax var hægt að hefjast handa. Nú hefur verið gengið frá lóðarkaupum undir skólann og mun kennslan fara fram í bráðabirgðahúsi sem stendur á lóðinni meðan að á byggingu skólans stendur. 155 börn hafa nú þegar verið skráð í skólann og mun kennsla hefjast um miðjan janúar. Heildarkostnaður við lóð og byggingu skólans er um 2 milljónir.
Á sjónvarpsstöðinni Omega fór fram söfnun fimmtudaginn 17 nóvember fyrir skólastarfi í Pakistan og Heimili litlu ljósanna í Indlandi. Tókst söfnunin vel og voru mikil og jákvæð viðbrögð við henni. Margir hafa ákveðið að taka að sér að styrkja barn á Heimili litlu ljósanna og einnig hafa margir lagt til fjármuni til starfsins í Pakistan. Viljum við þakka öllum sem komið hafa að söfnuninni og gefið af sér. Guð blessi ykkur öll fyrir hjálpina.
Rúmfatalagerinn hefur lagt söfnuninni Börn hjálpa börnum lið með höfðinglegu framlagi að upphæð 6,4 milljónir króna sem verður notað til að greiða allan kostnað við nýja skólabyggingu ABC barnahjálpar í Farooqabad í Pakistan. Skólinn verður tvísetinn og mun þjóna um 300 börnum í 1.-10. bekk. Framlagið dugar fyrir landskika undir skólann, byggingu fimm skólastofa, tilraunastofu, tölvustofu, sal sem notaður verður sem heimavist fyrir 100 stúlkur til að byrja með og hjúkrunarherbergi ásamt öllum búnaði, tækjum og húsgögnum. Framlagið bætir úr afar brýnni þörf.
Föstudagurinn 21. október var árlegur ABC dagur á útvarpsstöðinni Lindinni og stóð dagskráin yfir frá kl. 9 - 18.
Þennan dag var safnað fyrir skólahúsi í Peshawar í norðvestur Pakistan. ABC barnahjálp hóf starf í Pakistan í ágúst sl. Engin skólaskylda er í Pakistan og mikið um ólæsi og að börn geti ekki gengið í skóla sökum fátæktar. Ástandið var átakanlegt fyrir jarðskjálftana en er enn verra nú þegar yfir 8000 skólabyggingar eru hrundar.
ABC barnahjálp hefur komið inn sem vonarljós fyrir mörg börn í Pakistan. Starfið er nú þegar með 150 börn á sínu framfæri en tugir barna eru á biðlista eftir skólagöngu. ABC barnahjálp er nú að byrja skólastarf í borginni Peshawar í norðvestur Pakistan þar sem áætlað er að 78 börn hefji nám í janúar en börnin verði orðin 200 talsins í mars.
Opinn aðalfundur ABC barnahjálpar var haldinn þann 14. september sl. á skrifstofu starfsins að Síðumúla 29. Farið var m.a. yfir ársreikning starfsins sem mun birtast fljótlega hér á heimasíðu ABC.
ABC barnahjálp barst vegleg gjöf að upphæð ein milljón króna í janúar 2005 frá Félagi íslenskra bókaútgefenda. Gjöfin var veitt vegna hamfaranna við Indlandshaf á annan dag jóla og tileinkuð læsi og menntun barna. Þar sem El Shaddai barnaheimilið er í næsta nágrenni við flóðasvæðin og mun koma til með að taka við munaðarlausum börnum vegna flóðanna þá var ákveðið að styrkurinn rynni þangað. Staðið hefur til að koma upp bókasafni á heimilinu og er tilbúið herbergi undir það í nýja húsinu. Því fannst okkur tilvalið styrkur frá bókaútgefendum á Íslandi rynni til að koma upp bókasafninu. Ef afgangur verður mun hann fara til frekari uppbyggingar á heimilinu.
ABC dagur var haldinn á útvarpsstöðinni Lindinni FM 102,9 föstudaginn 1. október. Þetta er árlegur söfnunardagur þar sem safnað er fyrir brýnustu þörfum í starfinu. Að þessu sinni var safnað fyrir kornabarnahúsi á El Shaddai barnaheimilinu á Indlandi. Alls söfnuðust um 1,2 milljónir króna og eru gefendum færðar bestu þakkir fyrir örlætið.
Kornabarnahúsið verður 279 fermetrar og kostar byggingin um 4,7 milljónir króna eða um 17.000 kr. á fermetrann. Áður höfðu safnast um 2 milljónir króna upp í kornabarnahúsið þannig að fyrir ABC daginn vantaði 2,7 milljónir til að endar næðu saman. Lágmarksmarkmið var að ná einni milljón til að hægt yrði að hefja byggingarframkvæmdir. Sú upphæð náðist og daginn áður bættust að auki við afmælisgjafir að upphæð 102.500 kr. úr áttræðisafmæli þar sem afmælisbarnið gaf afmælisgjafirnar sínar til byggingarinnar. Eftir daginn vantar því aðeins 1.6 milljónir kr. upp á til að fullgera húsið. Mikil þörf er fyrir kornabarnahúsið, en það er nauðsynlegt til að unnt sé að halda áfram að taka við yfirgefnum kornabörnum. Til stendur að byggingarframkvæmdir hefjist nú í október.
Sjá nánari upplýsingar um kornabarnahúsið
Verið er að hanna nýtt tölvukerfi fyrir ABC. Á heimasíðunni verður stuðningsaðilum veittur sérstakur aðgangur til að þeir geti séð greiðslustöðu sína og fengið upplýsingar um börnin sem þeir styrkja.
Splunkuný heimasíða ABC er nú loksins komin á netið. Síðan er ennþá í vinnslu og mun bætast við meira efni reglulega þar til síðan verður fullunnin. Einnig er hún væntanleg á fleiri tungumálum.
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is