Fréttir beint frá Úganda

Litlu jólin í Kitetika og Kasangati

Mánudaginn 30. nóvember voru Litlu jólin haldin í ABC skólunum í Kitetika og Kasangati. Það var mikið fjör hjá börnunum þennan dag og gleðin skein úr hverju andliti. Börnin fengu gos, köku og nammi og gjafir frá stuðningsaðilum sínum. Þau fegnu m.a. sápu, vaskafat og sokka og voru þau öll hæstánægð með þessa gjöf. Börnin verða í jólafríi til loka janúar en þá hefst nýtt skólaár í Úganda. 

Börnin senda stuðningsaðilum sínum bestu óskir um gleðileg jól með þakklæti fyrir stuðninginn. 

Sjá myndir með því að styðja á þessar vefslóðir: 
Myndir frá Jólaskemmtun í Kitetika 2009
Myndir frá Jólaskemmtun í Kasangati 2009
Sagt frá Litlu jólunum 2009



 

Myndir frá Rackoko.



 

Svefnskáli í Rackoko Annar í byggingu
Kojur á þremur hæðum Þröngt mega sáttir sofa!
skólastofa Einn bekkurinn fyrir utan stofuna sína

Hér stendur til að byggja heimili fyrir ungar mæður Hér eru ungar ófrískar stúlkur eða með nýburana sína
Biðröð í rólurnar Eldað fyrir marga í stórum potti
skólabjallan Ein að passa bróðir sinn
nokkrir krakkar Sorgmæddur drengur

8.10.2007

Guluferð Iðunnar Ásu

Guluferð Iðunanr Ásu

meira ->

ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is