ABC barst rausnarleg gjöf að upphæð 4 milljónir króna frá Guðlaugu Kristófersdóttur og börnum hennar Guðbjörgu Nielsdóttur Hansen, Sigurbjörgu Nielsdóttur Hansen og Þ. Magnúsi Nielssyni Hansen. Gjöfin er gefin til minningar um Jónu Hansen og Niels Hansen og hefur verið notuð til byggingar skóla á Heimili litlu ljósanna á Indlandi.
Við þökkum þeim innilega fyrir þessa frábæru gjöf.
Velferðarsjóður barna hefur gert styrktarsamning við ABC barnahjálp um stuðning við starf ABC í Líberíu að upphæð 18 milljónir króna á árunum 2007-2009. Nú hefur verið byggð heimavist fyrir stúlkur á svæðinu.
![]() |
![]() |
Atorka Group hefur gert styrktarsamning við ABC barnahjálp um stuðning við starf ABC í Burkina Faso að upphæð 15 milljónir króna á árunum 2007-2009. Bygging á nýju skólahúsi er stendur nú yfir og er áætlað að taka húsið í notkun í október 2010.
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Hraðlestrarskólinn hefur gefið eina milljón króna til byggingar heimavistar fyrir 100 stúlkur í Úganda auk gjafabréfa á hraðlestrarnámskeið.
![]() |
![]() |
Nemendur fjölbrautarskólans í Ármúla safna nú fyrir byggingu skóla í Gujranwala í Pakistan.
![]() |
![]() |

Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is